Greinar
Upprisa holdsins
Vatíkanið eða Páfagarður er stórmerkilegur staður og í raun hálfgert fyrirbæri í margs konar skilningi þess orðs. Það er sjálfstætt ríki, landlukt land, sem einungis á landamæri að Ítalíu enda í rauninni staðsett inni í miðri Rómaborg. Þarna hefur sjálfur páfinn aðsetur sitt. Situr þar á Hinum helga stól og drottnar yfir kaþólikkum um allan…
Lesa meira . . .Stalín á Google
Staðreyndir eiga undir högg að sækja. Bæði frá hægri og vinstri vængnum. Eins dapurlega og það nú kann að hljóma. Að rýna í tölfræði og greina munstur úr upplýsingum er allt í einu orðið ægilegt tabú. Meira að segja hjá frjálslyndum alþjóðlegum stórfyrirtækjum sem einmitt sérhæfa sig í því að rýna í tölur og greina…
Lesa meira . . .Bananalýðveldi
Já, lesandi góður. Það er orðið staðfest. Við búum í bananalýðveldi. Samkvæmt skilgreiningu alfræðivefsins Wikipedia er hugtakið nýyrði um lýðveldi sem hafa haft tíð ríkisstjórnarskipti og er í dag notað frjálslega um lönd þar sem stjórnmál eru í reiðuleysi. Þá eru fréttir sem sagðar voru í vikunni af aðför Sýslumannsins í Reykjavík að frjálsri fjölmiðlun…
Lesa meira . . .Áfram konur
Fyrir rétt rúmum tveimur árum var borin upp tillaga úr ræðustól Alþingis þar sem stungið var upp á að hlutirnir yrðu hugsaðir örlítið upp á nýtt. Þá var fólk að velta fyrir sér hvernig halda mætti upp á 100 ár af kosningarétti kvenna. Tillagan var kvennaþing á Alþingi. Sjálfum fannst mér þetta afbragðs hugmynd. Framkvæmdin…
Lesa meira . . .Hjartað og heilinn
Ég er alveg undarlega rólegur yfir þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem nú standa yfir. Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Vinstri græn hafa alltaf verið þrír síðustu flokkarnir sem ég mundi kjósa. Einhvern tíma hefði ég orðið brjálaður yfir tilhugsuninni um þetta stjórnarmunstur. Ég sé líka að margt fólk sem ég hef átt samleið með í gegnum tíðina er eðlilega…
Lesa meira . . .Ríkiskirkjan
Í dag er allra síðasti séns til að skrá sig úr Þjóðkirkjunni, fyrir þá sem ekki vilja greiða sóknargjöld fyrir árið 2018. Þjóðkirkjan er furðulegasta stofnunin sem rekin er fyrir fé skattgreiðenda en langflestir meðlima hennar hafa verið skráðir í hana sjálfkrafa sem ómálga ungbörn. Stofnunin er rekin á hugsjónum tvö þúsund ára draugasögu úr…
Lesa meira . . .Kærleikurinn í umferðinni
Það getur reynst nokkuð góður mælikvarði á geðheilsu manna hversu vel þeir kunna að bregðast við áreiti í umferðinni á götum höfuðborgarsvæðisins. Sjálfur lærði ég fyrir mörgum árum að mikilvægt er halda þar ró sinni í hvívetna, sýna þolinmæði og stillingu. Þrátt fyrir að hafa aldrei trúað á neitt sem kalla megi æðri máttarvöld þykir…
Lesa meira . . .Hvers er að minnast?
Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, sagði skáldið. Ekki grátum við það nú, þó síður sé. Margir sjá í nýju ári ótal tækifæri til að breyta um kúrs, rétta sig af og verða betri manneskjur. Það eru þó ákveðnar stundir sem maður mun sakna frá árinu sem er…
Lesa meira . . .Samgöngur framtíðar
Nú eru ýmis teikn á lofti um að stærsta kosningamálið í komandi borgarstjórnarkosningum verði almenningssamgöngur. Borgarlína er fyrirbæri sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér saman um og hafa nú þegar lagt talsverða vinnu í að undirbúa. Sjálfur fagna ég öllum hugmyndum um bættar samgöngur. Helst vildi ég að undir Reykjavík allri væri almennilegt neðanjarðarlestakerfi…
Lesa meira . . .Ótuktarlýður
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti nýverið að auglýsa tillögu sem miðaði að því að fólki sem býr við fjölþættan vanda, geðsjúkdóma og vímuefnafíkn, yrði tryggt húsnæði í sérstökum þjónustuíbúðum í nýju hverfi bæjarins. Samkvæmt minnisblaði búsetu- og húsnæðissviðs Akureyrar var ekki talið forsvaranlegt að hafa umrædda einstaklinga í venjulegum fjölbýlishúsum eins og það var orðað. Með þessu…
Lesa meira . . .Leiðsögn og sálgæsla
Ég ræddi á dögunum við föður ungs manns sem fyrirfór sér á síðasta ári. Hann sagði ekkert sárara en horfa á eftir afkvæmi sínu í dauðann af þessum sökum. Sér í lagi vegna þess að þetta væri svo mikill óþarfi. Dauðsföll vegna slysa eru eitthvað sem alltaf getur gerst, slys eru slys. En sjálfsvígin mætti…
Lesa meira . . .Félagslegur réttlætisriddari
Þegar ég verð orðinn stór ætla ég að verða réttlætisriddari. Það verður gaman. Þá ætla ég að ríða fram á óupplýstan ritvöll samfélagsmiðlanna og láta ljós mitt skína við öll möguleg tilefni. Umræðan um kynbundinn launamun býður upp á fjölmörg læk-tækifæri. Ég ætla líka að vera mikið í að móðgast fyrir hönd annarra. Eins og…
Lesa meira . . .Verkefni dagsins
https://www.visir.is/k/3c277c41-7197-4a48-8dce-3b3b24f0e1fd-1628709597244?jwsource=cl Lengi vel bjó ég við svokallaða gluggaumslagafóbíu. Ég gat bara ekki fengið mig til þess að opna gluggaumslög. Ekki af því ég skuldaði einhverju smálánafyrirtæki eða væri með allt niður um mig. Það var ekki þannig. Ég hef bara aldrei þolað gluggaumslög. Ég er heldur enginn sérstakur aðdáandi þeirra í dag. En fyrir einhverjum…
Lesa meira . . .